Froðubönd og Stuðmenn!

Ég tölti í Laugardalinn í afmælisveislu hjá bankanum sem samsettur er úr kaupi og þingi. Einhvern veginn finnst mér nú að Kaupþing eigi ekki að vera að orðið svona gamalt, var það virkilega stofnað þegar ég var fimm ára og hvað hét það þá?

Hér er mín skoðun á þessum tónleikum, allt út frá mínum smekk. Tónleikarnir voru bara nokkuð skemmtilegir. Ég hafði sérstaklega gaman af því að hlusta á SSSól, mikið helvíti er hann Helgi mikill töffari :) Todmobile sem alltaf var í miklu uppáhaldi hjá mér á djammárunum mínum voru í einu orði frábær, það var eins og Eyþór og Andrea hefðu glansmyndirnar sínar því þetta var svo ólíkt þeim, það er greinilega gott að vera giftur og búa Selfossi......? Eða hvað? Gaman að sjá Garðar Thor svona í nærmynd, hefði verið nær að halda bara aðra tónleika þar sem hann kæmi einn fram, allt í boði bankans. Bubbi góður, alltaf óhræddur við að tjá sínar skoðanir, gjaldkeri og ráðherra....tja...kannski ekki alveg besta samlíkingin sem ég hef heyrt...burtséð frá því var Bubbi góður. Svo ég tali nú ekki um MUGISON, ég kiknaði nú bara í hnjáliðunum, hrikalega er maðurinn hæfileikaríkur!! Er þá allt upptalið?

Nei, ó nei! Eftir eru froðuböndin tvö Nylon og Luxor, ég fékk nú bara kjánahroll. Af tvennu illu hefði frekar verið hægt að kvelja mig með tónlistinni sem Nylon reyndi að pína út úr sér. Þær voru eins og framhaldsskólanemar í Söngvakeppninni sem þeir halda einu sinni á ári. Luxor var náttúrulega að koma fram í fyrsta sinn en ég þeir voru eitthvað svo raunamæddir með magapínu og sungu tónlist sem finnst á væminn.is

Og hvað voru Stuðmenn að spá? á svona fjölskyldutónleikum mæta þeir ekki einu sinni með réttu hljóðfærin sín, heldur einhverja "hljóðgervla" hefði ekki verið nær að spila gömlu góðu tónlistana sína og ná þannig upp stemmingu? Í staðinn fóru bara allir. Hversu margir skyldu hafa skipt um stöð?

En til hamingju með afmælið Kaupþing og takk fyrir góða tónleika. Fæ ég kannski vaxtalækkun ef ég kaupi diskinn með Nylon?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Heyrðu það er bara niðurfelling á færslugjöldum, lækkun vaxta um 3% og ókeypis yfirdráttur ef maður verður neyddur til að kaupa disk með Vælon

Ragnheiður , 18.8.2007 kl. 00:35

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Þið eruð greinilega hrifnari af strákum en stelpum, ekkert við það að athuga, en eins og mér þykir Nylon hópurinn leiðinlegur, þá nýtur hann vinsælda hjá yngstu kynslóðinni. 

Mér líkaði vel þessi úttekt hjá þér Janus,  enda svo fyrirséð að það hefði mátt skrifa hana í fyrradag.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.8.2007 kl. 10:36

3 Smámynd: Kristján Eldjárn Þorgeirsson

Bubbi var lang lang bestur þarna.  Sammála þér með Luxor og Nylon

Kristján Eldjárn Þorgeirsson, 21.8.2007 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband