Litla Ameríka

Ég heilsaði sólinni í heilsurúnti dagsins. Eftir frekar erfiða línuskautaferð í rokinu á Ægissíðu ákvað ég að smella mér í nýju Krónu búðina sem verið var að opna niður við sjó. Ég fann mér körfu og brunaði um gangana á þessari nýju búð. Mér finnst svo gaman í svona risa matvörubúðum. Ég keyrði alla gangana, bara til að kíkja hvort ég myndi finna eitthvað nýtt og spennandi og það gerðist heldur betur í þessari búð.

Þarna í miðjum ganginum var hægt að kaupa ekkert annað en uppáhalds, bestu tegundina af Maccaroni and Chesse sem Ameríka hefur upp á að bjóða. Ég trúði ekki eigin augun, ég hoppaði af gleði þarna í miðjum ganginum og keypti þrjá pakka af þessu ameríska uppáhaldi mínu. Ég stoppaði og hugsaði til horfinna tíma í Tampa-borg. Vá hvað þetta var óvænt ánægja.

Þarna á ganginum hugsaði ég að það eina sem ég saknaði nú var Ranch salatdressingin frá Wishbone og það var við manninn mælt. Ég tók fimm skref í viðbót og þarna blasti hún við mér í nákvæmlega eins plastbrúsa og fyrir tíu árum síðan.

Þetta var góð verslunarferð. Í kvöld fékk ég mér maccaroni and chesse og salat með ranch dressingu.....and I loved it!!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég þori varla að vona...
Ætli það fáist Pop-Tarts þarna í Litlu-Ameríku???? 

Heiða B. Heiðars, 12.8.2007 kl. 21:54

2 Smámynd: Halla Rut

Hvað er með þetta með "maccaroni and chesse"? Systir mín vað Aupair i USA fyrir 100 árum og hún talar en um þetta. 

Halla Rut , 13.8.2007 kl. 21:33

3 Smámynd: Janus

Það er bara svo sjúklega gott......hefur þú ekki smakkað?

Janus, 14.8.2007 kl. 22:32

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ætla sko beint í þessa búð næst þegar ég fer í bæjarferð og kaupa M&C, verð að smakka þetta!

Guðríður Haraldsdóttir, 18.8.2007 kl. 00:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband